Ég hef unnið lengi í verkefna- og vörustjórnun og þar séð skýrt hvar hlutirnir ganga vel, hvar þeir fara að hiksta og hvað skilur á milli þess sem virkar í alvörunni og þess sem lítur bara vel út á blaði.
Samhliða því hef ég sjálfur rekist á alls konar núning í lífinu utan vinnunnar, í samhæfingu, utanumhaldi, heimilislífi og öllu því mannlega sem sjaldan fær almennileg verkfæri. Ég er líka bara þannig týpa að mér finnst skemmtilegt að finna lausnir, búa til hluti og laga það sem mætti virka miklu betur.
Núna ætla ég að einbeita mér alfarið að því að skapa markvissari lausnir, meðal annars með hjálp gervigreindarforritunar. Lausnir sem taka raunverulegar þarfir alvarlega, passa betur við fólk og aðstæður þess og gera hlutina einfaldari þar sem þess er þörf.
Nánar um migÞjónusta í boði
Ég býð fyrirtækjum upp á hands-on námskeið í því hvernig þau geta nýtt sér þessa tækni í alvörunni. Ekki sem einhverja loðna kynningu á því hvað gæti mögulega verið hægt, heldur þannig að ég komi inn og við notum tæknina saman til að leysa raunverulegt vandamál.
Hugmyndin er einföld: við tökum fyrir eitthvað sem fyrirtækið er í dag fast með, kerfi, ferli eða lausn sem er óþarflega leiðinleg, óskilvirk, ljót eða dýr, og í stað þess að tala um hvernig mætti kannski bæta það einhvern tímann, byggjum við saman nýja og miklu nothæfari útgáfu.
Mér finnst það miklu meira virði en að tala bara um möguleikana. Þegar fólk sér með eigin augum að það er hægt að skipta út gömlu lausninni fyrir eitthvað sem passar betur við þeirra vinnuflæði, þeirra fólk og þeirra þarfir, þá fyrst verður ljóst hvað þessi tækni getur gert. Og í mörgum tilfellum getur það líka þýtt minni kostnað, minni pirring og miklu betri nýtingu á tíma.






Vandamálið
Þegar einhver sem þér þykir vænt um þarf aðstoð ætti utanumhaldið ekki að vera það sem reynir mest á. En það verður það alltof oft. Skilaboð dreifast, ábyrgðin verður óljós og hlutir detta á milli einfaldlega vegna þess að enginn vissi hver átti að gera hvað eða hvenær.
Innsýnin
Vandamálið er sjaldnast læknisfræðilegt. Það er mannlegt. Fjölskyldur, vinir og aðrir sem vilja hjálpa þurfa leið til að halda utan um hlutina saman á hátt sem líður eðlilega, ekki eins og þau séu komin inn í þungt stofnanakerfi.
Lausnin
Tól fyrir umönnunarhringi, ættingja, vini og nágranna sem halda utan um umönnunina saman. Hannað fyrir þann raunverulega og oft flókna veruleika sem fylgir því þegar margir þurfa að láta hlutina ganga upp í sameiningu.
Meira samhengi
Umönnunarkerfi eru til í þúsundatali. En það að umonnun.is skyldi hafa verið laust lén, og að nánast ekkert venjulegt fólk hafi heyrt um þær lausnir sem þegar eru til á þessu sviði, segir sitt. Þetta þarf að nálgast frá öðru sjónarhorni, frá sjónarhorni fólksins sem er í raun og veru að reyna að halda utan um umönnunina, vera til staðar og láta hlutina ganga upp.
Hver kemur hvenær. Hvað hefur verið gert. Hverju gleymdist að segja frá. Hlutirnir sem detta á milli, ekki vegna þess að engum sé ekki sama, heldur vegna þess að það vantar góða leið til að vera samstíga.
Sagan okkar er hugmynd að lausn sem hjálpar fjölskyldum að byggja upp lífssögu frá fyrstu árum og láta hana vaxa með manneskjunni í gegnum allt lífið.
Þetta er ekki bara "ævisaga" sem er skrifuð eftir á. Þetta er saga sem byrjar snemma, byggist upp jafnt og þétt og verður síðar dýrmætur hluti af samhengi, minningum og umönnun.
Vandamálið
Sögurnar sem skipta mestu máli í fjölskyldum eru sjaldnast geymdar á einum stað. Þær dreifast á milli fólks, mynda, skilaboða, staða og minninga, og með tímanum hverfur meira en maður heldur.
Þegar fjölskyldur reyna að varðveita sögu ástvinar er efnið oft dreift:
- í hausnum á ættingjum
- í myndaalbúmum
- í símanum hjá einhverjum
- í gömlum tölvupóstum
- í Facebook póstum
- í stökum samtölum sem glatast
Þetta gerir það erfitt að byggja upp heildstæða, lifandi sögu.
Sagan okkar sameinar þetta í einn stað þar sem fjölskylda getur safnað minningum, brotum, myndum og samhengi jafnt og þétt.
Lausnin
Sagan okkar er staður þar sem þessi brot geta komið saman.
Ekki sem þung ævisaga.
Ekki sem verkefni sem þarf að klára.
Heldur sem saga sem byggist hægt og rólega upp.
Brot fyrir brot.
Mynd fyrir mynd.
Minning fyrir minningu.
- Setning sem barn sagði og allir hlógu að.
- Mynd af húsinu áður en því var breytt.
- Saga um hvernig fólk kynntist.
- Lag sem segir meira en löng útskýring.
- Staður sem skiptir máli.
- Atvik sem fjölskyldan rifjar enn upp aftur og aftur.
Hvernig þetta gæti virkað
1. Sagan byrjar snemma
Foreldrar eða nánustu aðstandendur byrja að skrá fyrstu augnablikin:
- fyrstu dagana
- fyrstu skrefin
- fyrstu orðin
- afmæli
- skólabyrjun
- myndir og stuttar minningar
- litlu brotin sem annars dreifast eða glatast
Í stað þess að hlutir fari í síma, albúm, glósur eða bara gleymist með tímanum, fær sagan einn stað þar sem hún safnast upp.
2. Sagan vex með barninu
Þegar barnið eldist verður úr þessu samfelld lífslína. Ekki bara stóru tímamótin, heldur líka litlu augnablikin sem gera söguna lifandi.
- hvað var barnið stórt á ákveðnum aldri
- hvaða orðatiltæki það notaði
- hvað það hafði áhuga á á mismunandi tímabilum
- hverjir voru mikilvægir í lífinu þess
- hvaða atvik mótuðu það
3. Einstaklingurinn tekur söguna yfir
Við ákveðinn aldur getur einstaklingurinn tekið við sögunni sjálfur og haldið áfram að byggja hana upp.
Þá verður þetta ekki bara saga sem foreldrar skráðu, heldur persónuleg saga sem einstaklingurinn á og mótar áfram sjálfur.
4. Sagan verður hluti af umönnun síðar
Síðar á ævinni getur sagan orðið ómetanleg í umönnunarsamhengi.
Hún getur hjálpað aðstandendum að skilja betur:
- hver manneskjan er
- hvaðan hún kemur
- hvað hefur mótað hana
- hvaða minningar og samhengi skipta máli
- hvernig hægt er að nálgast hana af meiri hlýju og dýpt
Þá kemur sagan full circle.
Kjarninn
Þetta er ekki bara eitthvað sem aðrir lesa síðar.
Þetta er líka eitthvað sem þú getur notað núna, til að rifja upp, muna betur og halda utan um það sem skiptir máli.
Hvaða lag var það aftur sem þið voruð að spila þegar þið kynntust?
Hvaða tónleikar fóruð þið aftur á í Prag?
Hversu há voru börnin þegar þau voru tveggja ára?
Hvernig leit gamla húsið út áður en því var breytt?
Af hverju þetta skiptir máli
- Það sem skiptir máli fær að lifa áfram
- Fjölskyldur byggja sameiginlega heild
- Fortíðin verður aðgengilegri
- Minningar verða meira en bara brot
- Saga manneskju verður sýnileg
Dæmi um notkun
Strikin á veggnum
Í stað þess að gera strik á vegginn til að fylgjast með hæð barnsins væri hægt að skrá hæðina í Sögu okkar.
Síðar væri hægt að spyrja:
- Hversu stór var hún þegar hún var 5 ára?
- Hvenær tók hann stærsta vaxtarkippinn?
- Hvernig báru systkinin sig saman á mismunandi aldri?
Litlu hlutirnir verða þannig hluti af stærri sögu.
Fjölskylduminningar
Ein systir man eftir jólunum 1972. Annar bróðir man eftir sumarbústaðarferðunum. Einhver á gamla mynd. Annar man eftir skemmtilegri sögu úr æsku.
Sagan okkar gæti hjálpað fjölskyldunni að safna þessu saman í eina heild.
Umönnun síðar á ævinni
Þegar fjölskylda annast aldraðan ástvin getur sagan hjálpað öllum að halda í samhengi, reisn og tengingu við það sem skipti máli í lífi viðkomandi.
Hvernig gervigreindin gæti hjálpað
Fegurðin við þetta concept er að fólk þarf ekki að "skrifa bók".
Það ætti að duga að skrá:
- stuttan texta
- einn minnispunkt
- mynd
- dagsetningu eða tímabil
- smá samhengi
Síðan gæti gervigreind hjálpað til við að:
- tengja brotin saman
- skipuleggja efnið
- fylla upp í samhengi
- draga saman tímabil
- skrifa heildstæðari ævisögu
- búa til mismunandi útgáfur í mismunandi stíl
Þannig gæti saga með mikla dýpt orðið til úr litlum brotum yfir langan tíma.
Tengingin við Umönnun
Umönnun hjálpar fólki að halda utan um:
- samskipti
- heimsóknir
- dagatal
- yfirsýn
- samhæfingu
Sagan okkar myndi bæta við annarri vídd:
- sögunni sjálfri
- minningunum
- samhengi manneskjunnar
- því sem gerir umönnun persónulegri og dýpri
Umönnun heldur utan um núið.
Sagan okkar heldur utan um söguna.
Saman gæti þetta orðið mjög öflug og mannleg heild.
Auka vinkill
Þegar við á, getur þetta líka stutt umönnun, með því að hjálpa fólki að sjá manneskjuna, ekki bara hlutverkin og verkefnin í kringum hana.
Hvert þetta gæti þróast
Sagan okkar gæti byrjað einfalt:
- stofna sögu
- bæta við minningum
- tengja myndir
- setja tímamót á tímalínu
Síðan mætti þróa áfram:
- samvinnu innan fjölskyldu
- aðgangsstýringu
- arftöku sögunnar milli kynslóða
- fleiri AI leiðir til að vinna úr efninu
- dýpri tengingu við Umönnun og umönnunarhringi
Kjarni hugmyndarinnar
Sagan okkar snýst um að saga manneskju byrji ekki þegar einhver ákveður að skrifa hana eftir á.
Hún getur byrjað strax.
Hún getur vaxið hægt og rólega.
Hún getur fylgt manneskjunni alla ævi.
Og síðar getur hún orðið hluti af því hvernig við munum, skiljum og styðjum hvert annað.
Frá fyrstu minningum.
Yfir í eigið líf.
Og síðar inn í umönnunarhringinn.
Sagan okkar.
Fimman er ekki bara trúbador, heldur líka lifandi dæmi um hvernig tæknin getur bætt upplifun, einfaldað bókanir og gert þjónustuna bæði skýrari og skemmtilegri.
Kosningakerfið
Áhorfendur kjósa lög í rauntíma. Stemningin byrjar fyrr, þátttakan verður meiri og lagavalið færist í átt að því sem virkar í raun, í stað þess að kvöldið fari í handahófskenndar beiðnir og vesen.
Bókunarkerfi með innbyggðri sjálfsafgreiðslureiknivél
Bókunarferlið verður skýrara, verðlagningin gagnsærri og það þarf ekki að fara í gegnum endalaust fram og til baka. Þetta sýnir hvernig tæknin getur einfaldað bæði söluferlið og þjónustuna sjálfa.
PlayDateSync er byggt út frá raunverulegri þörf fyrir betri samhæfingu milli heimila. Þegar börn fara á milli húsa skapast oft alls konar grá svæði í kringum skjátíma, reglur og sanngirni. Þetta er tilraun til að búa til skýrari og nothæfari leið til að halda utan um það.
5 metra breitt, 5 metra djúpt og 3,3 metra hátt skrímsli sem getur hýst golfhermi, bíósal, veislurými eða nánast hvað sem er. Hugmyndin er ekki bara að eiga uppblásanlegt tjald, heldur að skapa sveigjanlegt upplifunarrými sem hægt er að nýta á ótrúlega marga vegu.
Alveg að verða tilbúið
Í verkefnavinnu lenda fyrirtæki oft í því að nota mörg tól sem tala illa saman. Upplýsingar dreifast, utanumhald verður óþarflega þungt og framkvæmdin flóknari en hún þyrfti að vera. GoLivePlaybook byggir á reynslu minni úr verkefna- og vörutengdu umhverfi og þeirri trú að með tækninni sé hægt að búa til umhverfi sem passar raunverulega við fyrirtækið sjálft, ekki bara troða öllum inn í sama mótið.
Í vinnslu
Hugmyndin á bak við kosningakerfið nær langt út fyrir tónlist. CrowdSync er víðari sýn á það hvernig hópar og stjórnendur geta syncað sig í rauntíma um val, flæði og orku. Fimman kosningakerfið er fyrsta raunverulega implementationið af þessari hugsun í lifandi umhverfi.
Ég er að þróa fjölskyldudagatalslausn sem les inn tölvupósta frá skóla, tómstundum og öðrum aðilum með hjálp gervigreindar og breytir þeim í viðburði og verkefni. Inni í því er líka verkefnalisti fyrir krakkana þar sem þau safna stigum. Þetta er enn í þróun, en ég er þegar byrjaður að nota þetta heima.
Hugmynd að vef/appi fyrir golfhópa sem spila reglulega saman, halda sumar-mót, þróa sitt eigið format og gætu jafnvel tengst öðrum hópum með tímanum. Byggt á því hversu mikið líf, form og menning myndast oft inni í svona hópum, án þess að það eigi sér almennilega heimili.
Samtalið skiptir öllu
Besta útgáfan af því sem ég byggi verður aldrei til frá mér einum. Mín reynsla gefur mér byrjunarpunktinn, þessa tilfinningu fyrir því að eitthvað ætti að vera betra. En fólkið sem lifir með þessum veruleika á hverjum degi sér hluti sem ég sé ekki.
Þess vegna eru viðbrögð ekki aukaatriði, heldur hluti af því sem skiptir mestu máli. Og þess vegna hef ég yfirleitt meiri áhuga á góðu samtali en á því að hafa rétt fyrir mér. Ef eitthvað hér kveikir eitthvað hjá þér, eða ef þú sérð þetta öðruvísi, þá langar mig að heyra það.